top of page
470224422_1374216697308692_8103718879255

Ert þú að leita að okkur?

Are you looking for us?

Hlutastörf, full störf og

sumarstörf í boði á ýmsum sviðum

Við erum að bæta við teymið okkar, bæði á Múlabergi Bistro&Bar og Teríunni Brasserie en báðir staðir eru reknir af sömu eigendum og teymi.

 

Við erum með magnað og fjölbreytt teymi og okkur vantar að bæta í hópinn.

Við hvetjum öll sem hafa mikinn áhuga á þjónustustörfum, vilja hafa gaman í vinnunnni og vilja bæta í reynslubankann að sækja um.

 

Reynsla er kostur, menntun í fögunum er frábært en það sem mestu máli skiptir er áhugi á starfinu sem þú sækir um– það skiptir okkur öllu máli.

STÖRF Í BOÐI

ELDHÚS

STARFSMAÐUR Í ELDHÚSI - HLUTASTARF

Við leitum að metnaðarfullum einstakling sem hefur áhuga á matreiðslu.
Mikill kostur ef þú hefur reynslu í faginu. Unnið er á vöktum á kvöldin/helgar.

MATREIÐSLUNEMI Á SAMNING - FULLT STARF

Við erum alltaf opin fyrir umsóknum um matreiðslunema sem vilja skrá sig á samning. 
Endilega hafðu samband ef þú ert að velta fyrir þér nemasamningi í matreiðslu.

STARFSMAÐUR Í UPPVASK - HLUTASTARF

Lifandi og skemmtilegt starf í eldhúsi.  Um er að ræða vaktavinnu á kvöldin og um helgar.​

Starfið felur í sér þrif og frágang á búnaði og leirtaui. Mjög mikilvæg staða fyrir alla starfsemi hússins.

SALUR 

ÞJÓNN Í SAL - HLUTASTARF

Lágmarksaldur: 18 ára 
Unnið er á kvöldin og um helgar.

Óskað er eftir einhverjum sem getur byrjað fljótlega með skóla eða annarri vinnu. 

Reynsla af sambærilegum störfum er kostur.

Við erum að leita að kröftugum einstaklingum sem hafa mikinn metnað fyrir þjónustustarfi og vilja til að læra enn frekar um starfið og að veita framúrskarandi þjónustu. 
 

NEMASAMNINGUR - FRAMREIÐSLA

Við leitum að metnaðarfullum og þjónustulunduðum einstaklingi sem vill læra fagið í lifandi og skemmtilegu umhverfi. Um er að ræða stöðu á nemasamning í framreiðslu þar sem þú færð tækifæri til að læra af reynslumiklu fagfólki.

Það er aldrei of snemmt að byrja að huga að nemasamningi! Námið og starfið er hægt að laga að þínum aðstæðum, hvort sem þú vilt vinna meðfram skóla eða taka stærra stöðuhlutfall.

Vinnutími og starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi – fullt starf, hálft starf eða hlutastarf kemur allt til greina.

Ertu að velta fyrir þér hvort þetta gæti hentað þér?

Hafðu samband við okkur og við förum yfir möguleikana með þér – alveg óskuldbindandi.

TERÍAN BRASSERIE

Skoða störf í boði á Teríunni,

dótturstað Múlabergs

bottom of page